Magnús búinn að kæra: „Heilindi kerfisins í heild eru undir“ – Sjáðu kæruna

Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur sent inn kæru til kjörbréfanefndar Alþingis vegna annmarka á talningu atkvæða í kjördæminu um liðna helgi.

Magnús greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og birtir afrit af kærunni. Þar segir hann meðal annars:

„Kosningakærunni hefur nú verið skilað inn og málið í höndum Alþingis. Ég trúi því og treysti að þingmenn skoði þessa kosningakæru af fullri sanngirni og alvöru.

Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur síðan hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru undir í þessu máli.“

Magnús telur að þeir ágallar sem voru á talningu atkvæða þýði að ekki sé annað fært en að kjósa að nýju í kjördæminu. Kjörgögn voru til dæmis ekki innsigluð eftir að talningu lauk aðfaranótt sunnudags heldur geymd inni í sal Hótels Borgarness.

„Allar málsástæður kærunnar, hver um sig og eins allar saman, fela í sér ógildingarannmarka sem eru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið er til fyrri eða síðari talningarinnar, starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu,“ segir Magnús í færslu sinni.

Hann segir að eina leiðin til að leysa þann vanda sem við blasir sé að skipa nýja og hæfa yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi og endurtaka kosningarnar þannig að hafið sé yfir allan vafa að farið sé eftir lögum og reglum. „Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“