Magni hættur að sofa með sæng: „Þetta er búið að vera algjörlega galið“

Tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson segist varla sofa undir sæng lengur, enda veðurblíðan verið með eindæmum góð á Norðurlandi eystra og Austurlandi.

Fréttablaðið fjallar um hitabylgjuna sem verið hefur á þessum slóðum undanfarna daga en eins og kunnugt er fór hitinn í 29,4 gráður á Hallormsstað á þriðjudag. Hitinn á þessum slóðum hefur víða farið yfir 25 gráður síðustu daga en í raun má segja að sumarið í heild hafi verið einstakt.

Magni var í berjamó í Vaðlaheiði þegar Fréttablaðið ræddi við hann og sagði hann að heiðin væri blá af berjum. Hann er með annan fótinn austur á Borgarfirði þar sem sumarið hefur verið einstakt.

„Ég hef ekki sofið undir sænginni minni í svona sex vikur. Dúnsængin hefur fengið að víkja. Þetta er búið að vera algjörlega galið.“

Magni segist hafa rölt með sinn yngsta í leikskólann klukkan rúmlega átta í gærmorgun og þá var hitinn kominn í 22 gráður.

„Ég opnaði dyrnar og fékk nákvæmlega sömu tilfinningu og þegar maður er úti á Spáni. Ég gekk nánast á vegg. Sjóðheitan hitavegg.“