Reynir Traustason, einn reyndasti fjölmiðlamaður landsins og núverandi ritstjóri Mannlífs, hefur haldið fylgjendum sínum á Facebook upplýstum um heilsuátak sem hann hefur verið í frá áramótum.
Nú þegar tíu vikur eru liðnar af átakinu eru farin níu kíló, eða jafn mörg og komu á hann á seinni sex mánuðum ársins 2022.
„Þetta þýðir að ég er hálfu kílói undir markmiði mínu frá áramótum eða sem nemur 50 grömmum á viku. Stefni að því að ná upp slakanum á næstu vikum. Um komandi mánaðamót verð ég léttari en ég hef verið í rúmt ár,“ segir Reynir.
Hann segist ekki birta þessar upplýsingar á Facebook vegna athyglissýki heldur vegna þess að það setur á hann þann þrýsting sem dugar til aðhalds.
„Ávinningurinn að því að léttast er sá helstur að þolið í fjallgöngum eykst eins og reyndar við alla hreyfingu. Ef við skoðum hvað er að baki þeim níu kílóum sem eru horfin þá þýðir þetta að ég þarf ekki lengur að rogast með níu lítra af mjólk, allra minna ferða. Uppskeran er sem sagt bætt heilsa og meira úthald.“
Reynir útskýrði í febrúar hvernig hann færi að þessu.
„Aðferð mín er einföld. Ég fasta frá sunnudagskvöldi til fimmtudags. Á mánudegi er engin neysla nema te og vatn. Á þriðjudegi og miðvikudegi innbyrði ég grænan drykk sem gerður er eftir leynilegri uppskrift. Svo er algjört bann við sykri og hveiti mjög takmarkað.“