Magnaður árangur Ásmundar: Sjáðu hvað hann léttist mikið á einum mánuði

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dvalið á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands undanfarinn mánuð. Óhætt er að segja að dagurinn í dag hafi verið stór fyrir Ásmund því þá útskrifaðist hann af stofnuninni – og það með glæsibrag.

Ásmundur hefur haldið vinum og vandamönnum upplýstum um gang mála á Facebook-síðu sinni og hefur hann birt nokkra skemmtilega pistla um dvölina.

Ásmundur hafði í nógu að snúast meðan á dvölinni stóð. Hver dagur var tekinn snemma í ræktinni, svo fylgdi morgunmatur í kjölfarið og vatnsleikfimi. Þá var farið í gönguferðir hvern dag. Ásmundur hefur farið nokkrum sinnum áður í Hveragerði og látið vel af dvölinni þar.

Í kvöld birti Ásmundur hálfgerðan uppgjörspistil um dvölina og má segja að hann komi léttari á líkama og sál til baka.

„Útskriftardagurinn rann upp með hefðbundnum vigtarskrekk. En það birti yfir þegar í ljós kom að gæinn sem stakk perunni í samband fyrir mánuði síðan skilar eftir 11 kílóum af mör á Hælinu,“ segir Ásmundur sem kveðst hafa borðað og æft vel meðan á dvölinni stóð.

„Ég fékk 10 kílóa sekk til að minna mig á hvað ég var þyngri þegar ég kom fyrir 4 vikum. Nú þarf að halda haus og þakka fyrir sig með því að láta verkin áfram tala . Það er akkúrat sem ég geri fyrir aðra og nú fer ég í það sæti.“

Ásmundur dregur ekkert undan þegar hann segir að Heilsustofnunin sé á heimsmælikvarða.

„Þegar þú kemur á stofnun sem þú kynntist fyrst fyrir 20 árum rifjast upp minningar. Á Hælinu er sami starfsmannakjarni en þjónustan, maturinn og kaliberið í meðferðinni og umgjörð starfseminnar er á heimsklassa fullyrði ég. Það segir allt um Hælið að meðferðinni fleygir fram með reynsluboltum og nýju fólki sem við gestirnir hreinlega elskum. Svo mikið er þakklætið. Íslendingar þurfa ekki að leita annað eftir endurhæfingu. Hælið er best í Heimi. Þakka starfsmönnum og samferðafólki fyrir bráðskemmtilega daga.“