„Þetta var virkilega skemmtilegt að bjarga honum greyinu,“ segir Aðalheiður Millý Steindórsdóttir í samtali við Hringbraut. Aðalheiður er í teymi á vegum dýraverndunarfélagsins Villikatta sem, eins og nafnið gefur til kynna, kemur köttum á vergangi í öruggt skjól.
Á tólfta tímanum í gærkvöldi fór teymið í útkall í Hafnarfirði eftir að upplýsingar bárust um villikött, 5-6 vikna kettling, á ákveðnu svæði í bænum. Nokkru áður hafði teymið komið tveimur systkinum hans til bjargar á svipuðu svæði. Útkallið í gærkvöldi var þó erfiðara enda myrkur úti og kalt í veðri og í raun algjör tilviljun að hann fannst.
„Þetta var spurning um líf og dauða fyrir kisa því einn úti hefði hann ekki lifað nóttina af vegna kulda,“ segir Aðalheiður. Það var fyrir hreina tilviljun að ein í hópnum kom auga á kettlinginn þegar hún lýsti með vasaljósi inn í hlaðinn hraunvegg. Þar með fór í gang mikið ferli við að bjarga kettlingnum.
Aðalheiður birti myndband af björguninni á Facebook-síðu sinni í morgun og er óhætt að segja að allt hafi þetta endað vel. Kettlingurinn var eðli málsins samkvæmt nokkuð hvekktur en við góða heilsu. Honum var komið í öruggt skjól þar sem hann fékk meðal annars volga mjólk, ást og hlýju.
Myndbandið má sjá hér að neðan: