Magnað góð­verk konu í Bónus í Hóla­garði – „Ég er í sjokki“

Í því á­standi sem ríkir á Ís­landi – og í heiminum öllum – er alltaf þörf á góðum og já­kvæðum fréttum. Góð­hjörtuð kona í Breið­holti fær hrós dagsins fyrir góð­verk í verslun Bónuss í Hóla­garði í Breið­holti í dag.

Ka­sia Szafrani­ec, móðir sjö ára pilts, lýsti eftir konunni í Face­book-hópi íbúa í Breið­holtinu. Þannig er mál með vexti að pilturinn ungi hafði farið út í búð fyrir mömmu sína þar sem hún þurfti að vera heima með öðru barni sínu. Keypti hann einn lítra af mjólk og grjóna­graut en þegar kom að því að borga vandaðist málið.

Ein­hverra hluta vegna gat hann ekki borgað með kortinu sem Ka­sia hafði látið hann fá og þá hafði hann gleymt PIN-númerinu. Þá voru góð ráð dýr en í röðinni fyrir aftan strákinn var kona í rauðum jakka eða úlpu sem borgaði fyrir hann.

„Ef þú ert að lesa þetta elsku þú, getur þú plís sent mér skila­boð svo ég geti borgað þér til baka,“ sagði Ka­sia í færslunni.

Í sam­tali við Hring­braut nú um klukkan 16 sagði Ka­sia að konan væri búin að hafa sam­band. Sagði hún Ka­siu að hún vildi ekki fá greitt til baka, þess í stað mætti hún láta son sinn hafa peninginn.

„Ég er í sjokki,“ segir Ka­sia sem er aug­ljós­lega þakk­lát þessari góðu konu sem kom syni henni til hjálpar. Segir Ka­sia að það sé gott að vita til þess að úti í sam­fé­laginu séu góð­hjartaðir ein­staklingar sem eru til­búnir að hjálpa. „Þetta gerir daginn betri,“ segir hún.