Magga Frikka harðorð: Ekki neinn getað vísað á eina falsfrétt á Fréttinni

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, gerir umtalað viðtal Elon Musk, forstjóra Twitter, Teslu og SpaceX, við BBC að umtalsefni á Facebook-síðu Stjórnmálaspjallsins.

Í viðtalinu fór Musk um víðan völl og barst talið meðal annars að falsfréttum og hatursorðræðu á Twitter. Musk var ekki á þeim buxunum að láta fréttamann breska ríkisútvarpsins vaða yfir sig og krafði hann svara um fréttaflutning af ýmsum málum, til dæmis varðandi bólusetningar gegn COVID-19.

Þá sagði Musk að fréttamaður BBC gæti ekki bent honum á eitt einasta dæmi um hatursorðræðu á Twitter. Sagði fréttamaður BBC að hatursorðræða á Twitter væri að færast í vöxt.

„Ég held að þú vitir ekkert um hvað þú ert að tala því þú getur ekki gefið mér eitt einasta dæmi um hatursorðræðu, ekki bent á eitt tíst. Þú sagðir að hlutfall hatursorðræðu væri hátt. Það er ósátt, þú varst að ljúga,“ sagði Musk meðal annars.

Margrét virðist tengja við þetta ef marka má innlegg hennar í Stjórnmálaspjallið í vikunni.

„Svona hagar woke hyskið sér í hnotskurn, sakar fólk og miðla um hatur en getur ekki nefnt eitt dæmi um slíkt, við á Fréttinni þekkjum þetta vel og ekki hefur enþá ein einasta manneskja af þessum fjölmörgu geta vísað á eina falsfrétt eða meint hatur. Óheiðarleikinn er að tapa, þannig hefur það alltaf verið og mun alltaf verða. Óheiðarleikinn og lygin getur aðeins stoppað stutt við sem tískubylgja, upphafin af óheiðarlegu fólki sem virðist lifa á lyginni. Musk flottur í svörum og BBC fíflið eins og hálfviti,“ sagði Margrét harðorð.