Magga Frikka fór á tónleikana hjá Ingó: Segir þjóðina hafa sýnt honum stuðning í verki

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, var mætt á tónleika Ingólfs Þórarinssonar, Ingó Veðurguðs, síðastliðið föstudagskvöld.

Ingó hélt ferna tónleika um helgina og seldist upp á þá alla. Var Margrét mætt á fyrstu tónleikana sem haldnir voru klukkan 19:30 á föstudagskvöld. Miðað við pistil sem Margrét skrifaði á vef Fréttarinnar skemmti hún sér konunglega og segir hún að gríðarlega góð stemning hafi verið í salnum.

Sjá einnig: Vara­þing­maður vill lista yfir þá sem fóru á Ingó í gær: „Svo ég geti forðast þá“

„Ingó söng sín vinsælustu lög við góðar undirtektir, þar sem salurinn söng með, fólk reis upp úr sætum og undir lokin dönsuðu gestir með,“ segir Margrét meðal annars.

„Ingó tók nýja lagið sitt, Gítarinn, sem tónlistarmaðurinn segir að lýsi síðustu tveim árum í lífi sínu. Þau ár hafa verið Ingó og fjölskyldu hans erfið eftir að nafnlausar ásakanir bárust um meint kynferðisbrot hans,“ segir hún.

Margrét segir svo einnig:

„Það er því hægt að túlka það sem svo að þjóðin hafi sýnt Ingó stuðning í verki með góðri mætingu á tónleikana. Greina mátti góða samstöðu gegn því að menn séu ranglega sakaðir og útskúfaðir úr þjóðfélaginu eftir dómstól götunnar.“

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.