Héraðdómur Reykjavíkur hefur dæmt Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi.
Dómur var kveðinn upp í máli Semu Erlu Serdar, formanns Solaris, gegn Margréti í héraðsdómi í dag. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsinssem hefur dóminnn undir höndum.
Margréti var gefið að sök hótanir í garð Semu Erlu á ágústkvöldi árið 2018. Við aðalmeðferð málsins um miðjan janúar var ansi heitt í hamsi en finna mátti miklar tilfinningar og spennu milli Semu Erlu og Margrétar.
Margrét hafði í hótunum við Semu Erlu sunnudaginn 5. ágúst árið 2018 utandyra við veitingastaðinn Benzincafe á Grensásvegi í Reykjavík.
Hún hafi sagt: „Ég drep þig fokking ógeðslega tíkin þín“ eða „I'm gonna kill you, you fucking bitch.“ Hótunin hafi verið til þess fallin að vekja hjá Semu Erlu ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð.
Daginn eftir atvikið sendi Margrét Semu Erlu skilaboð þar sem hún baðst afsökunar á atvikinu.
„Sæl Sema langar bara að biðja þig afsökunar á atvikinu í gær, ég var bara svo reið því mér var sagt þarna í gær að þú hefur verið að breiða út lygasögur um mig og hefur reynt að fá mig bannaða af stöðum hér í borginni, það er í raun fasismi og þú hefur engan rétt á að stunda slíkan ófögnuð gegn mér, það er illa innrætt og ég hef ekkert gert þér, gangi þér samt sem áður vel, kveðja Margrét.“
Margrét neitaði sök í skýrslutöku og túlkaði orðaskipti sín við Semu Erlu sem móðganir frekar en hótanir. Aðspurð nánar út í orð sín sagði Margrét orðin í raun þýða eins og „stökktu fram af kletti“ á íslensku. Hún átti þó erfitt með að muna smáatriði enda „gríðarlega langt síðan, að verða komið á fimmta ár.“
Margrét greindi jafnframt frá því að hún hafi beðið Semu Erlu afsökunar á hegðun sinni daginn eftir og þar með hafi hún talið að málinu væri lokið. Sema Erla hafi þó aldrei svarað afsökunarbeiðninni, „svo kaldrifjuð er þessi kona.“
Fyrir aðalmeðferð málsins var Margrét bjartsýn á að málið færi sér í hag en hún taldi mjög mikilvægt að það fengi loks efnislega meðferð fyrir dómstólum.
Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að ekki skipti máli hvort Margrét hafi ætlað sér í raun að láta verða af hótunum sínum heldur hafi hótunin hlutrænt séð verið til þess fallin til að vekja ótta hjá Semu Erlu um líf sitt og velferð.
Líflátshótanir séu í eðli sínu til þess fallnar að vekja ótta. Þá kemur jafnframt fram að Margrét hafi einu sinni áður hlotið dóm og tvisvar sinnum gengist undir lögreglustjórasátt vegna umferðarlagabrota. Sakaferill hennar hafi þó ekki áhrif á refsinguna.
„Ekki þykir unnt að líta svo á að ákærða hafi sýnt af sér iðrun þar sem orðfæri hennar fyrir dómi og afsökunarbeiðni sú sem hún sendi brotaþola bera þess ekki merki,“ segir jafnframt í niðurstöðu héraðsdóms.