Mæðgurnar fengu áfall: „Ég skil ekki hvers vegna við megum ekki fara heim“

Óætt er að segja að mæðgum sem komu til Íslands á dögunum hafi brugðið þegar rúta sem þær tóku úr Leifsstöð nam staðar í Þórunnartúni en ekki á BSÍ eins og þær gerðu ráð fyrir. Þær töldu sig vera á leið heim eftir ferðalag til Serbíu en þess í stað var þeim skutlað beint á farsóttahótelið í Þórunnartúni þar sem við tók fimm daga sóttkví.

Fréttablaðið ræddi við Brönku Alexendarsdóttur í gærkvöldi en hún fór til Serbíu ásamt þrettán ára dóttur sinni á dögunum. Tilgangur ferðarinnar var að vera við útför móður Brönku sem lést fyrir skemmstu. Branka hefur nú lagt fram kröfu fyrir dómi og á jafnvel von á því að dómur liggi fyrir í dag.

Branka segir að enginn hafi sagt þeim neitt og var það ekki fyrr en rútan stöðvaði í Þórunnartúni að þær fengu upplýsingar um að þær færu hvergi.

Mæðgurnar héldu út þann 27. mars síðastliðinn en þá voru reglur um sóttvarnarhús fyrir farþega frá rauðum löndum ekki búnar að taka gildi.

„Þegar við lentum í Kefla­vík var allt orðið öðru­vísi á flug­vellinum en þegar við fórum út. Við fórum í PCR próf og síðan í vega­bréfa­eftir­litið þar sem verðirnir settu rauðan pappír í vega­bréfið okkar og sögðu okkur að sýna lög­reglunni. Ég var svo­lítið hissa á því að ég þyrfti að tala við lög­regluna,“ segir Branka við Fréttablaðið.

„Við fórum svo að út­ganginum og þá tekur við okkur leið girt af með böndum og lög­regla og starfs­menn klæddir Covid-búnaði sem vísa okkur beint upp í rútu.“

Þrátt fyrir heldur einkennilega atburðarás taldi Branka að rútan færi á BSÍ. Þaðan ætluðu þær mæðgur að fara beint heim í sóttkví en annað tók við. Segir Branka að þær mæðgur hafi engan veginn gert ráð fyrir að fara á hótel í fimm daga við komuna til landsins. Þannig hafi þær til dæmis aðeins pakkað léttum klæðnaði fyrir þessa fimm daga ferð til Serbíu.

„Ég skil bara ekki hvers vegna við megum ekki fara heim.“ segir hún og bætir við að þrjár sýnatökur sem þær hafa gengist undir síðustu daga hafi verið neikvæðar.

„Þegar við fengum nei­kvætt úr sýna­tökunni í Kefla­vík hringdi ég í Rauða krossinn og bað um leyfi til að fara heim en nei við fáum það ekki. Svo at­hugaði ég hvort við mættum fá okkur ferskt loft eða fara eitt­hvað út en við megum það ekki heldur. Okkur líður hræði­lega svona inni­lokuðum og að­stæðurnar hérna eru ekki boð­legar.“

Frétt Fréttablaðsins.