Mæðgurnar á leið til Flórída eftir söfnun: „Stuðningur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­lausar“

Ísa­bella von sem hefur sætt hrotta­legu ein­elti af hálfu jafn­aldra sinna í rúmt ár og reyndi að svipta sig lífi í fyrra­dag er á leið til Flórída með móður sinni. Ísa­bella á þar frænd­fólk og eldri systur.

Ingi­björg Gróa, frænka Ísa­bellu sem stóð fyrir söfnuninni fyrir, greinir frá þessu á Face­book.

„Stuðningur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hundruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar á leið til Flórída,“ skrifar Ingi­björg.

„Söfnunin fór framm úr okkar björtustu vonum. Það var hafn­firskt fyrir­­­tæki sem hafði sam­band og ætlar að sjà um flugið fyrir þær mæður, söfnunin dugar svo fyrir hóteli og ýmis­­konar af­­þreyingu fyrir þær mæðgur. Að finna og sjà fjölda fólks sem er til­­búið í að sam­einast til að gleðja unga stelpu, leyfa henni að finna öryggi og til­­hlökkun à ný eftir erfitt ár er að­dáunar­vert í alla staði og sýnir að kær­­leikurinn og góð­­mennskan er àvalt meiri þótt reiði & hatur reynir að ná yfir­­höndinni inn à milli!“

„Við vonum að um­­ræðan seinasta sólar­hring sé àminning til allra um að vanda sig á­valt í sam­­skiptum við aðra og sýna börnunum góð for­­dæmi því þau læra það sem fyrir þeim er haft. Fyrir ykkur sem eruð að upp­­lifa ein­elti , ég sendi ykkur styrk og vona að vitundar­vakning hafi orðið í samfèlaginu og verði ein­eltis for­varnir og við­bragðsàætlanir endur­­­skoðaðar,“ skrifar Ingi­björg.

„Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð til að lýsa seinasta sólar­hring , Þakklàtust er ég fyrir að Ísa­bella Von sé enn hér hjà okkur og sjài alla ástina og kær­leikan sem um­­vefur hana þessa stundina,“ skrifar hún að lokum.