Maðurinn sem lést í Brúará í Biskupstungum í gær var kanadískur ríkisborgari búsettur í Bandaríkjunum. Hann fór í ána til að bjarga syni sínum sem féll í hana.
Drengurinn slapp án meiðsla, en maðurinn missti sjálfur fótanna og barst niður eftir ánni.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu um málið, en þar segir að maðurinn hafi farið um það bil 400 til 500 metra með ánni sem er straumþung og mjög köld á þessu tiltekna svæði þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar fann hann.
Í tilkynningunni segir að lögreglan vinni áfram að rannsókn málsins. Og þá þakkar hún viðbragðsaðilum og öðrum vegfarendum sem komu að og aðstoðuðu í tengslum við slysið.