Maðurinn á bak við falsaða Eddu Falaks mynd­bandið stígur fram

Ólafur Torfa­son er maðurinn á bak við mynd­skeiðið sem gerði allt vit­laust í gær segir að um grín hafi verið að ræða.

Hann birti falsað mynd­skeið af hrað­banka Lands­bankans þar sem átti að standa „Edda Falak vinnur ekki í þessum banka“

Ólafur steif fram í við­tali í Bítinu á Bylgjunni og sagði að einungis hafi verið um grín að ræða.

„Þetta var sunnudagsgrín hjá mér. Ég ákvað bara að sprella svo­lítið, Edda Falak er búin að vera mikið í fréttum undanfarið og ég ákvað að gera bara smá grín um það,“ sagði Ólafur. Hann greindi frá því að hann hafi út­búið myndina í for­riti en gert þau mis­tök að gera myndina of raun­veru­lega.

Hann sagði þetta fals­frétt en allt gert í góðu gríni.

Lands­bankinn þurfti að spila vörn í gær á sam­fé­lags­miðlum og benda fólki á að mynd­bandið væri falsað

„Um­­rætt mynd­­skeið og skjá­­skot úr því eru fölsuð. Á myndinni og mynd­­skeiðinu er texti sem vísar til starfra nafn­­greindrar konu. Um er að ræða fölsun og að sjálf­­sögðu hefur slíkur texti aldrei birst í hrað­banka Lands­bankans. Okkur þykir miður að ein­hver sjái sér hag í að vega að um­­ræddi mann­eskju með þessum ó­­smekk­­lega hætti,“ skrifaði Karítas Rík­harðs­dóttir, sér­­­fræðingur í sam­­skiptum hjá Lands­bankanum, víða á Face­book.