Maður sem féll í Brúará við Miðfoss í dag er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Viðbragðsaðilar fengu tilkynningu um málið um tvöleytið í dag. Maðurinn fannst eftir skamma leit þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Hann var líkt og áður segir látinn og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur.
Í tilkynningunni segir að viðbragðsaðilar séu enn að störfum á vettvangi og vinnur nú rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi að rannsókn málsins.