Svo virðist vera sem einhver í Vesturbænum sé að ala upp lítinn og öflugan glæpamann miðað við símtal sem maður Nínu Richter, dagskrárgerðarkonu á RÚV, fékk í hádeginu.
Nína deilir býsna skemmtilegri færslu í Facebook-hóp Vesturbæinga þar sem hún segir frá símtalinu sem maðurinn hennar fékk. Gefum Nínu orðið:
„Maðurinn minn fékk símtal úr leyninúmeri rétt í þessu:
- Hey 2000 kall og þú færð hjólið þitt til baka!
- Ha?
- Áttu ekki Barbíhjól?
- Ertu að tala um hjól dóttur minnar?
- Uuu já það er á Melaskóla. 2000 kall, annars sérðu það aldrei aftur.
- Hvað meinarðu?
10 ára þjófur skellir síðan á.“
Nína tekur fram að hún hafi sent mann sinn einan í þessa svaðilför – för sem hann hafði að vísu ekki snúið til baka úr þegar hún birti færsluna. Þá tók hún fram að hún væri enn öskrandi úr hlátri.
„Hjólið er vissulega bleikt en ekki Barbíhjól, í stærð fyrir sex ára barn, svona ef einhver rekst á það (eða bófagengið). En fyi, einhver í hverfinu er að ala upp lítinn og öflugan glæpamann.“
Færsla Nínu hefur vakið talsverða athygli og segir auglýsingastjórinn Heiða B. Heiðars til dæmis í athugasemd: „Úrræðagóður! Ef ég ætti hann yrði ég pínu stolt af honum. En myndi ekki segja neinum frá því.“