Maður braust inn til Herdísar og réðst á hana með hníf: „Ég horfi í augun á honum en þau eru svo þanin, þau eru bara svört“

Varaþingkona Sjálfstæðisflokksins, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, opnar sig um það þegar maður braust inn í húsið hennar, réðst á hana og hótaði henni með hníf. Hún greindi frá atvikinu, sem átti sér stað fyrir tveimur árum,í þættinum Okkar á milli á RÚV.

„Ég er inni á baði og heyri að það er einhver sem bankar, hrópar og veður inn,“ segir hún sem var ein heima, en fyrst hélt hún að nágranninn væri kominn í heimsókn.

Er hún gekk fram á gang hafi mætt henni stór dökkklæddur maður sem öskraði á hana.

„Ég er smá tíma að átta mig á að þetta er maður sem flutti inn í íbúð á jarðhæð tveimur vikum áður,“ segir Herdís. „Hann bara sagði mér það. Hann ætlaði að drepa mig og svo byrjaði hann að vinna í því, mjög heiðarlega.“

„Þetta gerðist svo hratt. Ég öskra þrisvar, hann breytir ekki svip og nálgast hratt. Þá hugsa ég, ókei ég ætla ekki að eyða orku í þetta,“ sagði Herdís sem segir að maðurinn hafi beitt stórum eldhúshníf og veitt henni djúpan skurð sem náði niður að beini.

Hún segist þó hafa náð að forðast högg mannsins þar til hún var innikróuð inni á baðherbergi. Þá segist hún hafa hugsað hverju hún ætti að fórna næst.

Alls hlaut Herdís ellefu til fjórtán stungusár. „Ég horfi í augun á honum en þau eru svo þanin, þau eru bara svört,“ segir hún, en henni var hugsað til dýralífsþátta, sem veittu henni innblástur að næsta skrefi hennar. „Ég get bara látið mig hrynja í gólfið og þá mögulega er þetta ekki spennandi lengur. Og það var bara það sem ég gerði.“

Þetta virkaði. Maðurinn fór í burtu.

Hún segir að raunverulega áfallið hafi verið þegar hún komst að því að maðurinn hefði ekki átt að ganga laus. Hann hafði áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Herdís veltir fyrir sér hvers vegna svona hættulegur maður sem sé í eftirliti hjá lögreglu fái að flytja í íbúðarhúsnæði þar sem tvær einstæðar mæður búi með börnunum sínum.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef RÚV