Maður á miðjum aldri lést af slysförum

Maður á miðjum aldri lést af slysförum í Ósá fyrir botni Patreksfjarðar í sag. Neyðarlínunni barst tilkynning um slysið á tólfta tímanum í dag og var lögregla, sjúkralið og björgunarsveit kölluð á vettvang auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Maðurinn hafði ætlað að fara út í hyl sem staðsettur er undir Svuntufossi í botni fjarðarins. „Mikill straumur reyndist í hylnum og virðist maðurinn hafa misst fótana og lent í sjálfheldu í straumnum og fests um stund þar til nærstaddir komu honum til hjálpar,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Maðurinn hafði misst meðvitund áður en honum var bjargað úr sjálfheldunni. „Þau sem voru á staðnum hófu þegar endurlífgun og var þeim tilraunum haldið áfram allt þar til maðurinn hafði verið fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík, þar sem hann var úrskurðaður látinn.“

Rannsókn á tildrögum þessa slyss er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum. Ótímabært er að greina frá nafni mannsins að svo stöddu en fjölskyldu hans hefur verið tilkynnt um atburðinn.