„Maður á að vera stoltur af því að vera karlmaður“

Ummæli Bergsveins Ólafssonar, samfélagsmiðlastjörnu og fyrirlesara um karlmennsku hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Twitter í dag og í gær.

Bergsveinn segir mikilvægt að vera stoltur af því að vera karlkyns:

„„Það er ekkert að því að vera karlmaður. Maður á að vera stoltur af því að vera karlmaður, maður á að vera stoltur af því að vera karlmaður.

Mitt take er að karlmennska er dyggð, það er alltof mikið verið að tala niður karlmenn í samfélaginu, að þeir séu hluti af einhverju kúgandi feðraveldi og séu hvítir foréttindapésar. Það er kominn tími til að við tölum karlmenn aðeins upp og unga drengi upp.“

@beggiolafs Það er ekki í bara í lagi að vera karlmaður - heldur nauðsynlegt #fyp ♬ original sound - Beggiolafs

„Tími karlmanna er loksins kominn“

Svo virðist vera sem ummæli Begga fari öfugt ofan í netverja á samfélagsmiðlinum Twitter. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachman sem vakið hefur athygli fyrir ötula baráttu sína gegn kynferðisofbeldi sem skipuleggjandi Druslugöngunnar vakti fyrst máls á myndbandi Begga.

„„Tími karlmanna er loksins kominn, mikið var,“ skrifar Kolbrún í kaldhæðni. Guðmundur Jörundsson tekur undir með Kollu og segir í kaldhæðni: „Þorir á meðan aðrir þegja þessi!“

Þá svara margir Begga efnislega. Gunnar Hörður Garðarsson, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra leggur meðal annars orð í belg:

„Hvað er í gangi hérna? Svona gaura tal er ekki að hjálp neinum ungum drengjum sem líður illa og eru að leita að svörum. Það er ekki vont að viðurkenna vondar staðalímyndir kynjanna. Kennum drengjunum okkar að vera ljúfir, traustir og að virða mörk…og svo stoltir af góðum verkum.“

Þá leggur Hildur Lillendahl einnig fram línu um málið:

„Yfirvofandi doktor í sálfræði, kids. Hvað ætli honum finnist um hlutverk kvenna eða kvára?“