Lýsir von­lausri stöðu í Reykja­vík: Matar­laus svo vikum skiptir og fær enga að­stoð

„Ég hef ekki efni á því að kaupa mat eða borga leigu,“ segir Marian Cra­ciun í sam­tali við Frétta­blaðið, en hann hefur verið bú­settur hefur verið á Ís­landi í fjögur ár.

Marian lýsir skelfi­legum að­stæðum sem hann býr við, en hann flutti til Ís­lands eftir að honum var boðið vinna hér á landi. Þegar CO­VID-19-far­aldurinn skall á missti hann vinnuna en þrátt fyrir það á hann hvorki rétt á at­vinnu­leysis­bótum né fjár­hags­að­stoð frá Reykja­víkur­borg.

Marian segir að honum hafi verið tjáð, þegar í ljós kom að hann fengi ekki at­vinnu­leysis­bætur, að hann ætti rétt á að­stoð frá borginni.

„Þegar ég svo sæki um það er mér sagt að ég eigi engan rétt, ég hef því verið nánast matar­laus svo vikum skiptir og get ekki borgað af í­búðinni. Ég kemst ekki einu sinni aftur til Rúmeníu,“ segir hann.

Á­stæða þess að hann á ekki rétt á að­stoð frá borginni er sögð sú að hann er kvæntur í Rúmeníu, en sjálfur þver­tekur Marian fyrir það að eiga maka í Rúmeníu. „Ég er skilinn. En enginn virðist hafa tíma eða á­huga á því að kanna málið frekar,“ segir hann.

Haft er eftir Hólm­fríði Helgu Sigurðar­dóttur, upp­lýsinga­full­trúa hjá Vel­ferðar­sviði borgarinnar, sagðist við Frétta­blaðið ekki þekkja til þessa til­tekna máls og bætti við að að gagn­kvæm fram­færslu­skylda sé hjá hjónum. „Þær á­stæður sem geta legið að baki því að ein­stak­lingi sé synjað um fjár­hags­að­stoð eru ef við­komandi upp­fyllir ekki skil­yrði, til dæmis vegna tekna, eigna og hjú­skapar­stöðu.“