„Sameyki hafnar því að hækkun atvinnuleysisbóta leiði til þess að fólk velji sér að lifa á bótum. Það velur sér enginn að missa vinnuna!“
Þetta segir í tilkynningu sem Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu hefur sent frá sér. Félagið harmar þá stöðu sem upp er komin hjá félagsmönnum þess á Reykjanesi nú þegar Isavia og Fríhöfnin hafa sagt upp næstum 200 manns síðustu daga. Þessi fjöldi er til viðbótar þeim sem áður höfðu fengið uppsagnir eða lækkað starfshlutfall.
„Það er mikið áfall að stór fyrirtæki á borð við þessi tvö missi verkefni sín svo til á einu bretti. En það er hins vegar mikilvægt að þau sýni samfélagslega ábyrgð og komi til móts við starfsfólk sitt eins og kostur er meðan þetta tímabundna ástand varir,“ segir í tilkynningunni og það tekið fram að mannauður hvers fyrirtækis sé mikilvægur. Þá taki langan tíma að byggja upp þá þekkingu sem hefur skapast hjá starfsfólki.
„Sameyki stéttarfélag hvetur Isavia og Fríhöfnina til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda ráðningarsambandi við starfsfólk sitt eins og kostur er.“
Í tilkynningunni segir að staða félagsmanna sé flókin og óvissan mikil á meðan beðið er eftir að hægt verði að hefja vinnu í flugstöðinni að nýju.
„Þessi hópur bætist við þann stóra hóp sem þegar er atvinnulaus á Reykjanesi og nú sem aldrei fyrr er mikilvægt fyrir stjórnvöld að grípa inn í og skapa störf við hæfi.“
Bent er á að í júlí hafi atvinnuleysi á Suðurnesjum mælst 16,5% en meira meðal kvenna, allt upp í 19%. Það er með því mesta sem félagið hefur séð. „Atvinnuleysi meðal kvenna hefur aukist hraðar en karla og byggingarframkvæmdir og ný hafnarmannvirki munu ekki ná að virkja þann hóp til atvinnuþátttöku.“
Þá er bent á að hlutfall þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 6 mánuði og lengur muni hækka töluvert næstu vikur og mánuði. Því sé mikilvægt að stjórnvöld beiti sér með markvissum hætti til að tryggja afkomu þessa fólks. Það megi til dæmis gera með sköpun nýrra starfa, lengingu á tekjutengdum atvinnuleysisbótum og hækkun atvinnuleysisbóta sem er eitt stærsta hagsmunamál þessa hóps.
„Sameyki hafnar því að hækkun atvinnuleysisbóta leiði til þess að fólk velji sér að lifa á bótum. Það velur sér enginn að missa vinnuna!,“ segir í tilkynningunni.