Lýsir ferða­manna­sumarið hafið

Full vél af bólu­settum banda­rískum ferða­mönnum lenti á Kefla­víkur­flug­velli í morgun. Rætt var við Jóhannes Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka ferða­þjónustunnar vegna málsins í há­degis­fréttum Bylgjunnar.

Áður hefur komið fram að í dag komi átta far­þega­­vélar til landsins, sú fyrsta lenti í morgun og sjö eru væntan­­legar síðar í dag, þar af tvær frá há­á­hættu­­svæðum með ný­­gengi smita yfir 700. Rauði krossinn opnaði fjórða sótt­kvíar­hótelið á landinu í dag, á Hótel Kletti við Mjölnis­holt.

„Þessi vél er kannski fyrsta vélin sem er að koma með deti­keraða ferða­menn. Það sýnir það að ferða­manna­sumarið er kannski að hefjast núna,“ segir Jóhannes Þór.

Að­spurður að því hverjir muni koma hingað til lands í sumar segir hann:

„Til að byrja með verða það aðal­lega bólu­settir ferða­menn. En við munum þurfa að bíða heldur lengi eftir fólki frá megin­landi Evrópu.“