Lýsir erfiðri dvöl í sótt­kví á Ís­landi: „Hrifsaði mat­seðilinn af okkur og strunsaði í burtu“

Breski blaða­maðurinn Rob Dor­sett, sem staddur er hér á landi vegna leiks Ís­lands og Eng­lands í Þjóða­deildinni á laugar­dag, lýsir reynslu sinni af því að vera í sótt­kví hér á landi.

Rob, eins og aðrir ferða­menn sem koma til Ís­lands, þurfti að gangast undir sýna­töku við komuna til landsins og fara svo í sótt­kví uns niður­stöður úr seinni skimun liggja fyrir. Í pistli á vef Sky Sports lýsir Rob reynslu sinni af því að vera inni­lokaður á hótel­her­bergi á­samt mynda­töku­manni sínum, Scott Drummond.

Rob nefnir ekki hótelið sem hann dvelur á en hann segir að bæði veitinga­staðurinn á hótelinu og líkams­ræktar­salurinn sé lokaður vegna CO­VID-19 far­aldursins.

„Það er engin her­bergis­þjónusta. Bara listi af veitinga­stöðum og kaffi­húsum sem við getum reynt að hringja í til að senda okkur mat. Á laugar­dags­kvöldið var of mikið að gera á öllum þessara staða til að það væri hægt. Ein þjónusta býður upp á heim­sendingu en í okkar til­viki var ekki tekið við bresku greiðslu­korti,“ segir hann.

Hann segir að í tvo daga hafi þeir fé­lagar nærst á á­vöxtum, kar­töflu­flögum, hnetum og út­runnu sushi-i sem þeir höfðu keypt við komuna til landsins. Að lokum náðu þeir að sann­færa stað í ná­grenninu um að senda mat, en Rob bendir á að það hafi tekið langa stund og maturinn verið kominn um mið­nætti.

„Flestir Ís­lendingar sem við höfum mætt eru hræddir við okkur – við lítum aug­ljós­lega út fyrir að vera út­lendingar og þeir halda sig fjarri. Þegar við fórum í 10 mínútna göngu­túrinn okkar á sunnu­dag spurðum við starfs­mann veitinga­staðar, fyrir utan staðinn, hvort hún gæti mögu­lega sent okkur mat. Hún hrifsaði mat­seðilinn af okkur, sagði að staðurinn byði ekki upp á slíka þjónustu og strunsaði í burtu.“

Pistil Robs má lesa í heild sinni hér.