Lýsir eftir þjófi sem stal veglegu en óvenjulegu þýfi í morgun

Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush lýsir eftir manni sem braust inn í verslun hennar og tók á brott óvenjulegt þýfi. Fréttablaðið greinir frá þessu.

„Ef þið sjáið karlmann labbandi um í Kópavogi með múffu undir hendinni, svona frekar veglega múffu,“ segir Gerður.

Samkvæmt henni átti innbrotið sér stað í útibúi verslunarinnar við Dalveg um klukkan sjö í morgun.

„Hann heldur á bleikum kassa sem inniheldur múffu, ég vona að það sé glerbrot í henni þegar hann ætlar heim að nota hana,“ segir Gerður sem virðist ekki óska þjófnum hins besta.

„Það er að sjálfsögðu öryggiskerfi, myndavélar og aldrei peningar í kassanum, þetta var því mjög tilgangslaust innbrot. Hann náði engu nema þessari múffu,“ segir hún síðan, en bætir þó við að vonandi hafi innbrotið verið þess virði fyrir þjófinn.