Lýsa eftir mönnunum þremur og bak­vakt smit­rakningart­eymisins kölluð út

Lög­regla leitar nú að þremur rúmenskum karl­mönnum sem komu hingað til landsins fyrir fjórum dögum en mennirnir komu til landsins með þremur öðrum karl­mönnum sem voru hand­teknir fyrir þjófnað á Suður­landi í gær.

Tveir þeirra reyndust vera smitaðir af CO­VID-19 en þeir hefðu átt að vera í tveggja vikna sótt­kví líkt og aðrir sem koma til landsins. Við frekari rann­sókn kom í ljós að mennirnir voru með virk smit og þurfa því nú að sæta ein­angrun. Þá eru fjórtán lögreglumenn í sóttkví vegna málsins og verður fylgst vel með þeim næstu daga.

Sjá einnig: Greint frá þremur nýjum smitum í dag

Að því er kemur fram í frétt RÚV um málið hefur bak­vakt smitrakningar­teymis Al­manna­varna verið kölluð út til að að­stoða við leitina sem er stýrt af lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu og á Suður­landi. Að sögn Víðis Reynis­sonar yfir­lög­reglu­þjóns verður lík­lega lýst eftir mönnunum í kvöld.

RÚV greinir enn fremur frá því að mennirnir sem leitað er hafi gefið upp á­kveðna stað­setningu þar sem þeir ætluðu að dvelja á meðan sótt­kví stendur en reyndust síðan ekki vera þar. Engar vís­bendingar hafa borist um ferðir mannanna.

Oddur Árna­son, yfir­lög­reglu­þjónn á Sel­fossi, sagði í sam­tali við Frétta­blaðið að mögu­lega gætu mennirnir sem voru hand­teknir tengst skipu­lagðri glæpa­starf­semi en tók fram að hinna mannanna væri að­eins leitað til að tryggja að farið yrði eftir reglum um sótt­kví.