Knattspyrnuhöllin í Hveragerði, kennd við Hamar, sprakk í óveðrinu í nótt og fauk uppblásið þakið í burtu. Tjónið er umtalsvert, að því er segir á vef Fréttablaðsins sem var fyrst allra miðla með þessa frétt.
„Hún sprakk, ég var að fá þessar fréttir fyrir tíu mínútum. Þá voru starfsmenn fyrir utan höllina, ég er að bíða eftir að heyra í bæjarstjórunum. Þetta er mikið tjón, við fyrstu sýn er húsið sé ónýtt,“ sagði Hermann Kristinn Hreinsson framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar við Fréttablaðið.
Lofthæð hússins var um 15 metrar en það var alls 5.120 fermetrar að stærð. Húsið var reist 2012 og hafði staðið af sér öll veður þar til nú. Húsið kostaði 300 milljónir.