Lúðvík Bergvinsson, héraðsdómslögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefur stefnt ritstjóra og útgáfufélagi Viðskiptablaðsins. Ástæðan er skrif sem birtust í blaðinu um störf hans sem óháðs kunnáttumanns vegna kaupa N1 á Festi.
Markaðurinn, viðskiptarit Fréttablaðsins, greinir frá þessu í dag.
Skrifin birtust í Óðni, nafnlausum dálki í blaðinu, um miðjan aprílmánuð. Var þar meðal annars fjallað um kostnað af störfum Lúðvíks sem óháðs kunnáttumanns en hann nam um 40 milljónum króna. Lúðvík var skipaður af Samkeppniseftirlitinu til að fylgjast með því að skilyrðum í sátt eftirlitsins vegna kaupanna væri fylgt eftir.
Í skrifum Óðins var látið að því liggja að hann hefði verið skipaður í starfið vegna vináttutengsla við Ásgeir Einarsson, aðstoðarforstjóra Samkeppniseftirlitsins. Lúðvík segir í stefnunni að það sé af og frá.
Þá var í skrifum Óðins sagt að kostnaðurinn væri efni í safaríkan Kveiks-þátt og að „öll skynsemis- og réttlætisrök“ hnígi að því að Festi kærði Lúðvík fyrir tilhæfulausa reikninga. Telur Lúðvík, að sögn Markaðarins, að í umræddum ummælum felist ásökun þess efnis að hann hafi haft fé af Festi með tilhæfulausum reikningum. Krefst hann ómerkingar umræddra ummæla.
Telur Lúðvík að blaðið hafi vegið með grófum hætti að æru og starfsheiðri hans og borið á hann sakir um lögbrot. Auk þess að krefjast ómerkingar nokkurra ummæla fer Lúðvík fram á þrjár milljónir króna í miskabætur.