„Nú hefur kórónuflensan borist til landsins sem betur fer. Ég fæ ekki skilið þá taugaveiklun sem tröllríður öllu og fréttamiðlar iða í skinninu.“
Þetta segir Lúðvík Vilhjálmsson eftirlaunaþegi í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Lúðvík skrifar þarna um kórónaveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Í gærkvöldi voru smitin hér á landi orðin 65 talsins og er óhætt að segja að heilbrigðisyfirvöld hér á landi, sem og annars staðar, líti málið alvarlegum augum enda getur veiran verið mjög skæð þeim sem eru í áhættuhópi.
Lúðvík segir að flensan sé nú í rénun í Kína, landinu þar sem veiran á uppruna sinn. Erlendir fjölmiðlar greina nú frá því að aðeins 19 ný tilfelli hefðu komið upp í landinu undanfarinn sólarhring og 17 látist.
„Kínverjar eru sjálfsagt einar 1.400 milljónir og þar hefur ekki orðið mikil fækkun, reyndar nánast engin. Þar sem vitað er að flensan er komin hingað vona ég að hún gangi sér til húðar fljótt. Best er að ljúka þessu af sem fyrst. Það styttist í landsleik í fótbolta á Laugardagsvelli. Verður hann háður fyrir „luktum dyrum,“ sem sagt engir áhorfendur. Ef til vill ætla menn að seinka 1. maí hátíðahöldum en 17. júní sleppur hugsanlega. Í júní ætti mér að vera óhætt að skreppa á völlinn og verða vitni að enn einu tapi liðs míns í fótbolta. Ungdómurinn getur svo farið á útiskemmtanir yfir verslunarmannahelgina og foreldrar þeirra skroppið til Miðjarðarhafsins í sangría og sól,“ segir Lúðvík í grein sinni.
Kínversk yfirvöld hafa gripið til róttækra aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar og virðist það hafa skilað góðum árangri eins og að framan greinir.
„Ég hef séð myndir í sjónvarpi frá Kína þar sem ber að líta breiðstræti með mörgum akreinum en engri umferð bíla né gangandi. Allir virðast heima undir sæng. Ekki sé ég slíkt gerast á Íslandi nema ef vera skyldi Laugavegurinn en það er víst af öðrum orsökum. Ég held að það hafi verið hinn ágætlega spaugsami Kalígúla keisari Rómar sem fór niður á strönd með svipu í hönd og hýddi sjóinn fyrir að granda skipum hans. Mér sýnist umstangið hér vera á svipuðum nótum.“
Lúðvík bendir svo á að þeir sem hafa látist af völdum COVID-19 séu flestir aldraðir og þar að auki heilsulitlir.
„Það er nýlunda að stjórnvöld hafi miklar áhyggjur af þessum hópi og hefur hann helst verið til óþurftar. Hann tekur pláss á spítölum og brúkar stundum munn um vanþakklæti heimsins. Sjálfur er ég í áhættuhópnum enda löngu löggilt gamalmenni. „Eitt sinn skal hver deyja“ segir einhvers staðar og öll erum við feig á endanum,“ segir Lúðvík að lokum.