Sjötíu ára saga Þjóðleikhússins er á dagskrá Hringbrautar næstu vikur. Þriggja þátta umfjöllun hófst á afmælisdegi leikhússins, sumardaginn fyrsta en húsið var vígt þá, þann 20.apríl árið 1950. Þættirnir eru unnir í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Rætt er við þjóðleikhússtjóra undanfarinna áratuga og áhrifa Guðlaugar Rósinkranz, fyrsta þjóðleikhússtjórans minnst. Aðdragandinn að byggingu og vígslu Þjóðleikhússins er reifaður en var bæði langur og dramatískur en húsið er oftar en ekki nefnd musteri íslenskrar menningar og tungu.
Rætt er við fólkið sem þekkir söguna, bæði leikara og leikstjóra og skyggnst er dýpra inn í starfsemi listamannanna eins og við stjórnun sviðsins, búningagerð, leikmunagerð og gervahönnun.
Umsjón með þáttunum hefur Linda Blöndal. Fyrsti þáttur var sýndur 23.apríl, sumardaginn fyrsta og verða næstu tveir þættir á dagskrá næstu fimmtudaga þar á eftir.
Fyrsta þátt má sjá hér að neðan en þar er meðal annars rætt við Svein Einarsson, annan þjóðleihússtjóra hússins sem lagði mesta áherslu á að efla íslenska leikritun sem hann taldi ekki hafa tekist á fyrstu 22 árunum sem Guðlaugur var leikhússtjóri.