Lögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum tímabundið vegna handtöku manns í Hafnarfirði síðastliðinn mánudag.
Fréttablaðið greindi frá málinu á forsíðu sinni í morgun en þar var haft eftir þremur sjónarvottum að fjórir lögregluþjóna, sem handtóku mann við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði á mánudag, hefðu gengið allt of langt í aðgerðum sínum.
„Þetta var ógeðslegt, eins og í bíómynd,“ hefur Fréttablaðið eftir sjónarvotti en hann lýsti því hvernig einn lögregluþjónanna beitti piparúða á manninn og annar lögregluþjónn sló hann ítrekað í höfuðið með kylfu þar til hann rotaðist og féll í jörðina.
Segir í fréttinni að allir fjórir hafi haldið áfram að berja manninn eftir að hann missti meðvitund.
„Ég skil að lögreglan þurfi að verja sig í átökum, en ekki halda áfram að berja manninn þegar hann er kominn í jörðina,“ sagði eitt vitnið við Fréttablaðið.
Lögregla sendi frá sér tilkynningu í morgun vegna málsins en þar kom fram að málinu hefði þegar verið vísað til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Á meðal málsgagna eru upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna á vettvangi.