Lög­reglu­maður á höfuð­borgar­svæðinu með CO­VID-19

Einn lög­reglu­maður hjá Lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu hefur verið greindur með CO­VID-19. Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglu en þar segir að ekki sé talið að við­komandi hafi smitast við störf sín hjá em­bættinu.

„Gripið var til allra við­eig­andi ráð­stafana strax og málið kom upp í gær og voru þrettán aðrir lög­reglu­menn sendir í sótt­kví vegna þessa, en að auki eru fimm lög­reglu­menn til við­bótar í úr­vinnslu­sótt­kví. Nú er unnið að því að tryggja mönnun á vaktir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin og miðar þeirri vinnu vel,“ segir í til­kynningu lög­reglu.

Þá segir að em­bættinu hafi verið skipt upp í sótt­hólf frá og með há­degi sl. föstu­dag, 31. júlí, og því hefur ofan­greint á­hrif á eina lög­reglu­stöð í um­dæminu, en ekki allar fjórar.

Ekki er hægt að veita frekari upp­lýsingar að svo stöddu.