Þakka má árvekni lögreglumanns á Suðurnesjum sem var á frívakt að lögregla handtók tvo karlmenn vegna gruns um vörslu og sölu fíkniefna í síðustu viku.
„Við leit í sumarbústað og tveimur bifreiðum fann lögregla umtalsvert magn af kannabisefnum og á fimmta hundrað þúsund í peningum sem talin eru vera ágóði af fíkniefnasölu,“ segir í skeyti frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þar segir að mennirnir hafi lagt bifreið sinni við hlið bifreiðar án skráningarnúmera þegar lögreglumaðurinn kom auga á þá. „Voru þeir að læðupokast við að flytja eitthvað milli bifreiðanna,“ segir í skeyti lögreglu en þar segir enn fremur að við leit í bifreiðinni hafi fundist kannabisefni í neyslupakkningum í hólfi í afturstuðara hennar. Undir númerslausu bifreiðinni fannst svo enn meira kannabis sem komið hafði verið fyrir þar til geymslu.
Mönnunum var sleppt að lokinni skýrslutöku og sæta þeir tilkynningarskyldu.
Í öðru óskyldu máli hafði lögregla afskipti af karlmanni sem framvísaði þremur pokum með kókaíni. Enn fremur voru höfð afskipti af öðrum karlmanni sem framvísaði kannabisefnum, að sögn lögreglu.