Lögreglan vill ekki að fólk mæti til björgunaraðgerða

Lögreglan og MAST vilja að fólk fari ekki í björgunaraðgerðir á á Nýjabæ í Borgarfirði á morgun, laugardag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST, sem vill meina að málið sé í vinnslu.

„Fyrir liggur að Matvælastofnun og lögreglan á Vesturlandi verða á staðnum á morgun að vinna að velferð dýranna á bænum.“ segir í tilkynningunni. „Við biðlum til allra hluteigandi að veita Matvælastofnun og lögreglu rými og vinnufrið því sameiginlegt markmið okkar allra er að tryggja velferð dýranna.“

Líkt og flestir vita varða fyrir­hugaðar björgunað­gerðir dýr sem þolað hafa illa með­ferð undan­farið. Hópurinn sem ætlað í aðgerðirnar segist hafa fengið nóg af umræddri með­ferð og að­gerðar­leysi stjórn­valda.