Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö stór mál tengd skipulagðri brotastarfsemi. Annað þeirra varðar stórtækt peningaþvætti og hitt varðar meðal annars stórtæka framleiðslu á fíkniefnum.
Lögreglan vill beina til fólks og hvetja almenning til að koma ábendingum til lögreglu vakni grunsemdir um framleiðslu fíkniefna.
„„Þetta gæti þess vegna verið í næsta nágrenni við ykkur og þess vegna í garðinum hjá ykkur,“ sagði Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði á blaðamannafundi í dag.
Hann sagði slík framleiðsla fari fram í iðnaðarhúsnæði, einbýlishúsum, sumarhúsum.
„Slík framleiðsla fer fram í iðnaðarhúsnæði, sumarhúsum, útihúsum við sveitabæi, í sveitabæjum, fjölbýlishúsum og einbýlishúsum. Þetta gæti þess vegna verið í næsta nágrenni við ykkur og þess vegna í garðinum hjá ykkur,“ sagði Margeir á blaðamannafundi í dag.
Hann nefndi dæmi sem almenningur gæti haft í huga sem gefa til kynna að framleiðsla sé í gangi.
Dregið fyrir glugga
Mikil rafmagnsnotkun
Grunsamlegar mannaferðir
Undarleg lykt
„Ég vil hvetja fólk til að gæta vel að nærumhverfi sínu enda hefur lögreglan séð mikla aukningu í framleiðslu fíkniefna hér á landi síðustu ár og aðallega í sambandi við kannabisræktanir,“ sagði hann að lokum.