Lögreglan sendi frá sér tilkynningar um stórtæk smygl Pólverja á verkjalyfinu Oxycontin sem er vinsælt lyf meðal fíkla. Það sem tilkynningin á sameiginlegt er að þær töflur sem fundust leyndust í nærbuxum Pólverjana.
Í fyrri tilkynningunni segir að í lok síðasta mánaðar voru tveir erlendir karlmenn staðnir að því að reyna smygla 833 oxycontintöflum. Tollverðir stöðvuðu þá við komuna til landsins frá Varsjá í Póllandi. Töflunum höfðu þeir komið fyrir í pokum í nærbuxum sínum.
Þeir voru handteknir og sættu skýrslutöku hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Húsleit var gerð hjá karlmanni sem talinn var tengjast hinum tveim ofangreindu og fundust þar meint fíkniefni og sterar. Að auki talsverðir fjármunir sem voru haldlagðir.
Fyrr í ágúst handtók lögreglan erlendan karlmann á Keflavíkurflugvelli. Við líkamsleit á honum við komuna frá Gdansk í Póllandi fundu tollverðir 1301 töflu af oxycontin sem hann hafði komið fyrir í nærfatnaði sínum. Hann var færður á lögreglustöð til skýrslutöku.
Íslendingar virðast enn reyna að smygla eftir gömlu aðferðunum. Því í tilkynningu lögreglu segir að íslenskur karlmaður hafi verið handtekinn í síðasta mánuði þegar hann reyndi að smygla amfetamíni til landsins.
Tollverðir fundu pakkningu með efninu í tösku hans við komuna frá Amsterdam í Hollandi.
Herra Hnetusmjör lýsti í viðtali við Sölva Tryggvason forðum daga þegar hann tók Oxycontin í fyrsta sinn.
„Þetta var algjör viðbjóður, en af því að maður var á svo dimmum stað reyndi maður einhvern vegin að slá þessu upp í grín bara. Þetta er ógeðslega sterkt opíumskylt lyf og vandamálið er að fræðslan í kringum þetta er ekki til staðar og þess vegna virkar þetta bara eins og tafla. Í bíómyndum sér maður harða fíkla vera að taka kók með röri eða sprauta sig, en í hræðilegum sögum sér maður aldrei neinn taka bara eina töflu. Þannig að þetta virkar einhvern vegin saklausara.“