Lögreglan stöðvaði 200 manna unglingapartý í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Guðmundarlundi, vinsælu útivistarsvæði í Kópavogi, í gærkvöldi. Útkallið kom rétt fyrir miðnætti en að sögn lögreglu er talið að um 200 unglingar hafi verið á svæðinu og fjölmargar bifreiðar.

Í skeyti sem lögreglan sendi frá sér í morgun kemur fram að unglingarnir hafi verið fljótir að yfirgefa samkvæmið þegar lögregla kom á vettvang.

Ekki þarf að fjölyrða um að samkomutakmarkanir eru enn í gildi og miðast þær við 50 manns. Ljóst er að töluvert fleiri voru á svæðinu en þær takmarkanir segja til um.

Svæðið nýtur orðið töluverðra vinsælda og er þar meðal annars hægt að grilla og setjast niður á bekki.

Stórt skógarsvæði er við lundinn en varað hefur verið við hættunni á gróðureldum undanfarna daga.