Lögreglan sendir frá sér tilkynningu vegna harmleiksins í Garðabæ

Ekkert bendir til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað þegar ungur drengur fannst látinn í heimahúsi í Garðabæ í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér vegna málsins.

„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um andlát barns í Garðabæ á þriðjudag þá vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu koma því á framfæri að um er að ræða mikinn harmleik, en ekkert bendir til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað,“ segir tilkynningunni. Þar segir jafnframt að lögregla muni ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Í fréttum RÚV í hádeginu kom fram að drengurinn, sem var ellefu ára, hafi látist af völdum skotsárs á þriðjudag.