„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill taka fram að hún er EKKI að sekta ökumenn bifreiða, sem eru komnar á nagladekk, þótt slík dekk séu almennt leyfð frá 1. nóvember til 15. apríl.“
Svo segir í tilkynningu sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu. Í færslunni er bent á að veturinn hafi þegar gert vart við sig víða á landinu - meðal annars á höfuðborgarsvæðinu og viðbúið að frost og hálka eigi eftir að gera ökumönnum áfram lífið leitt.
„Lögreglan hefur fengið mikið af fyrirspurnum um nagladekk frá ökumönnum á starfssvæði LRH sem og þeim sem eru koma til eða frá höfuðborgarsvæðinu, og því er það undirstrikað að ökumenn bifreiða, sem eru búnar nagladekkjum, eiga ekki sekt yfir höfði sér.“