Lögreglan á Suðurnesjum segir að lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur – hafi viðgengist á gosstöðvunum í Geldingadölum og að borið hafi á því undanfarið á fólk gangi út á hreinið.
„Ekki þarf að fjölyrða um hversu hættulegt athæfi þetta er. Algjörlega er óvíst hvort nýstorknað yfirborð hrauns haldi og undir því getur verið rauðglóandi kvika. Þá er rétt að benda á að fólk er með þessu að setja björgunaraðila í algjörlega vonlausa stöðu fari hlutirnir á versta veg,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Eldgosið hefur nú staðið yfir í þrjá mánuði og hafa vel á annað hundrað þúsund manns notið þess að geta fylgst með eldgosinu í miklu návígi og það í lítilli fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
„Viðbragðsaðilar hafa frá upphafi goss lagt sig alla fram um að koma í veg fyrir að slys verði á fólki sem heimsækir gosstöðvarnar, með leiðbeiningum ýmist á gosstöðvunum eða í gegnum frétta- og samfélagsmiðla. Gönguleiðir hafa verið stikaðar og lagfærðar, hættuleg svæði afmörkuð og grannt fylgst með hraunrennsli og gasmengun sem fólki gæti stafað hætta af.“
Lögregla minnir á að eldgosasvæði sé hættulegur staður að vera á og almenn skynsemi ætti því að segja fólki að nauðsynlegt er að gæta varúðar, hlusta á og fara eftir ráðleggingum viðbragðsaðila og vísindamanna. Sem betur fer hafi ekki orðið mjög alvarleg slys á fólki, þó að stundum hafi ekki mátt miklu muna eins og dæmið hér að framan sýnir.
„Maðurinn má sín lítils gagnvart náttúruöflunum sem þarna eru á ferðinni, ef eitthvað fer úrskeiðis. Á gossvæðinu er hættan raunveruleg og þarna er fólk statt í raunveruleikanum, en ekki fyrir framan tölvu þar sem hlutirnir ganga út á sýndarveruleika og hægt er að kaupa sér líf.“