Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við hættum sem geta skapast á Singles day, eða degi einhleypra. „Hægt er að gera góð kaup en einnig skapast hættur sem tölvuglæpamenn nýta sér.“ segir á Facebook-síðu lögreglunnar. Síðustu ár hafa verslanir boðið upp á alls kyns tilboð, sérstaklega á netinu, á þessum tiltekna degi, sem er einmitt í dag.
Lögreglan segir að í þessum málum sé að mörgu að hyggja og nefnir sem dæmi falskar sölusíður, tilkynningar um að „pakki sé kominn“ og fleira þar eftir götum. „Skoðið vel síðurnar þar sem þið verslið, hafa þær sögu, eru þær búnar að vera lengi til, hvert fer greiðslan?“ segir í tilkynningunni.
Þá er fólki ráðlagt að bera saman staðfestingarkóða og upphæðir. „Óprúttnir aðilar eiga það til að skipta um greiðslumiðil og 1.999 kr. er allt annað en 1.999 evrur.“
Auk þess er fólki bent á að hafa varan á þegar það fær tölvupóst eða SMS um pakka sem er kominn til skila. Lögreglan segir að auðvelt sé að falsa skilaboð þannig þau líti út fyrir að koma frá þekktum og viðurkenndum sendanda, og þá er biðlað til fólks að opna ekki tengla sem það fær senda strac, heldur slá frekar fyrst inn réttar heimasíður fyrirtækja.
„Farið varlega, hæfileg tortryggni er ykkar fyrsta vörn ykkar fyrir netsvindli.“ segir í lok færslu lögreglunnar.