Lögregla rannsakar enn tildrög þess að smábarn féll út um glugga á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Reykjavík um helgina. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins.
„Málið er ennþá í rannsókn, við vitum ekki enn hvað gerðist en erum að skoða hvernig þetta atvikast. En það er ekkert óvenjulegt að glugginn sé opinn, það er bara spurning hvernig krakkinn kemst upp í gluggakistuna,“ segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við Fréttablaðið.
Aðspurður segir Jóhann að ekkert bendi til þess að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað.
„Nei, þetta er bara óhappatilvik sem fór ansi vel,“ segir Jóhann. Barnaverndarnefnd hafi þó verið tilkynnt um málið.
„Barnaverndarnefnd er alltaf tilkynnt þegar það er um börn að ræða. En það er ekkert saknæmt í þessu, þetta er röð tilviljana sem leiða til þess sem gerist,“ segir Jóhann.
Að sögn Jóhanns er í lagi með barnið og engir sjáanlegir áverkar á því. Það hefur nú verið útskrifað af gjörgæslu.