Lög­reglan óskar eftir að­stoð: Hefur þú séð Sean?

„Lög­reglan á Suður­landi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradl­ey sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til bú­setu að Austur­vegi 34 á Sel­fossi. Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfis­kertur og á gengur einungis stuttar vega­lengdir án stuðnings.“

Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglunni á Suður­landi. Þar segir enn fremur:

„Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018 en ekki hefur frést af honum eftir það eða tekist að stað­festa hvar hann kunni að vera.

Nánustu ættingjar Sean eru bú­settir í Bret­landi og hafa óskað eftir því að líst verði eftir honum á al­þjóða­vísu. Þeir sem mögu­lega kunna að hafa upp­lýsingar um hvar Sean Bradl­ey er að finna eða ferðir hans eru beðnir að koma þeim upp­lýsingum til lög­reglunnar á Suður­landi á net­fangið sudur­land@log­reglan.is eða í síma +354 444 2000.“