Umferðarslys sem varð í miðbænum í gærkvöldi er ekki rannsakað sem slys. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið. Hann segir brotaflokka sem snúa að því að lífi eða heilsu annarra er stofnað á augljósan hátt til gáska. Fjallað er nánar um málið á vef Fréttablaðsins.
Meðlimir Facebook hópsins „Samtök um bíllausan lífsstíl“ velta orðalagi lögreglunnar fyrir sér.
„Slys? Þetta er lífshættulegt ofbeldi og ef löggan heldur áfram sínu aðgerðarleysi og meðvirkni með bílum endar þetta bara á einn hátt,“ segir Björn Teitsson, einn meðlimur hópsins.
„Mér hefur verið hótað með þessum hætti margoft og oft lán og lukka að ekki hafi verið verr,“ segir Björn og bætir við að flestir sem hjóla eigi líklega svipaða sögu.
„Ég varð vitni að þessu og já, þetta var engan vegin slys, þetta var pjúra ásetningur að aka á manninn og að aka á brott. Ökumaður ók ekki bara á brott heldur hélt áfram niður göngugötuna!“ skrifar meðlimur hópsins í athugasemd við færsluna.
Fjölmörg vitni voru á vettvangi og lögreglan veit um hvaða bíl ræðir, en hefur þó hvorki fundið bílinn né ökumanninn.
„Þetta er líkamsárás ekki umferðarslys! Óþolandi viðhorf sem birtist þarna hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,“ skrifar annar meðlimur í athugasemd.
„Tilraun til manndráps? Vopnið er bíll í þessu tilfelli…,“ skrifar enn annar meðlimur.