Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að sýna aðgát þegar hlutir eru keyptir af sölusíðum á netinu. Lögregla hefur nú upplýst fjölda innbrota í Sunnusmára í Kópavogi í síðasta mánuði.
Um var að ræða innbrot í bæði geymslur og hjólageymslur og stálu þjófarnir öllu steini léttara, m.a. reiðhjólum, matvælum og húsmunum af ýmsu tagi.
„Í fyrstu var á litlu að byggja við rannsókn málsins, en með þrautseigju og útsjónarsemi tókst lögreglu að komast á slóð hinna óprúttnu aðila, sem reyndust vera tveir karlar á fertugsaldri, en þeir hafa báðir játað sök,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Þá segir að framkvæmdar hafi verið húsleitir vegna rannsóknarinnar og var til dæmis lagt hald á mikið af þýfi. Hefur verið unnið að því að undanförnu að koma hlutunum aftur í réttar hendur, en tekið er fram að eitthvað af þýfinu hafi þegar verið selt á sölusíðum á netinu.
Af því tilefni hvetur lögreglan fólk til árvekni þegar keyptir eru hlutir á sölusíðum á netinu, t.d. að seljandi sýni kvittun fyrir vörunni.
„Of oft gerist það að mati lögreglu að þýfi finnst í fórum kaupenda sem bera við að þeir hafi ekki vitað að varan var stolin, vita ekki nafn seljanda, heimilisfang eða annað sem að gagni má koma við rannsókn málsins, en finnst engu að síður sárgrætilegt og ósanngjarnt að varan sé af þeim tekin og komið í vörslu réttmæts eiganda.“