Lögreglan í Manchester á Englandi segist ekki ætla upplýsa um framgang rannsóknar í máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar fyrr en eftir páska en Gylfi er í farbanni fram á páskadag. Þetta kemur fram í svari lögreglunnar við fyrirspurn Vísis.
Gylfi er laus gegn tryggingu til 17. apríl næstkomandi.
Ekkert hefur heyrst frá Gylfa Þór síðan hann var handtekinn en meint brot hans er sagt hafa átt sér stað árið 2017. Þá hefur lögreglan í Manchester ekkert sagt um framgang rannsóknarinnar utan þess að hún sé enn í gangi.
Fréttablaðið birti í dag tímalínu í máli Gylfa Þórs sem má sjáhér.