Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun halda leitinni að Friðfinni Frey Kristinssyni áfram í dag. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
Lýst var eftir Friðfinni í gær, en hann hefur verið týndur í fimm daga. Umfangsmikil leit lögreglunnar, þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita fór fram í gær en hátt í hundrað manns tóku þá þátt í leitinni.
„Við höldum áfram þar til við finnum viðkomandi eða einhverjar vísbendingar koma fram. Við gefumst ekki upp,“ segir Ágúst Svansson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Fréttablaðið.
Sjá einnig: Faðir Friðfinns um leitina að syni sínum: „Við bíðum milli vonar og ótta“
Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að síðast er vitað um ferðir Friðfinns, síðdegis fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi. Hann var þá klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur. Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg.
Lögreglan biður íbúa í hverfinu um að skoða nærumhverfi sitt eins og geymslur, stigaganga og garðskúra. Þá eru þeir sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu beðnir um að skoða slíka staði.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.