Lög­reglan haldi ekki hlífðar­skildi yfir upp­ljóstrurum

Margeir Sveins­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu, segir mjög slæmt að per­sónu­greinan­legum upp­lýsingum úr rann­sókn saka­máls hafi verið dreift víða.

Á annað hundrað síðum úr við­­kvæmri rann­­sókn Héraðs­sak­­sóknara á meintri spillingu innan fíkni­efna­lög­­reglunnar var lekið til fjöl­­miðla fyrir helgina. Í sam­tali við RÚV sagði Margeir það vera mjög al­var­legt.

Hann sagði einnig að skoðað yrði hvort verk­ferlum yrði breytt. „Lög­reglan hefur heimild til að vera í sam­skiptum við upp­ljóstrara og síðan er hver og einn ein­stak­lingur skoðaður.“

Mega greiða fyrir upplýsingar

Margeir sagði lög­regluna ekki nota upp­ljóstrara sem stunduðu sí­felld af­brot. Ekki tíðkaðist heldur að halda hlífðar­skildi yfir upp­ljóstrurum. „Nema þá að því leytinu til að þeir njóta nafn­leyndar. Þess vegna er þetta afar slæmt.“

Í reglu­gerð um sér­stakar að­ferðir og að­gerðir lög­reglu við rann­sókn saka­mála frá 2011 segir meðal annars að lög­reglu­manni sé ó­heimilt að gefa upp­ljóstrara fyrir­heit um í­vilnanir, slíkt sé ó­lög­legt og ekki á valdi lög­reglu.

Þar kemur einnig fram að heimilt sé að greiða upp­ljóstrara fyrir upp­lýsingar og koma þannig í veg fyrir al­var­legt brot. Það sé lög­reglu­stjóra að meta endan­lega heimild fyrir slíkri greiðslu.