Lögreglan hættir á Facebook vegna athugasemda Persónuverndar: „Yfir og út…“

Lögreglan á Suðurnesjum hættir á Facebook í kjölfar athugasemda frá Persónuverndar. Fram kemur í síðustu færslu lögreglunnar að öflug persónuvernd sé lögreglunni á Suðurnesjum kappsmál og lögð sé áherslu á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga.

„Lögum samkvæmt ber okkur að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé með þeim hætti að viðeigandi öryggi upplýsinganna sé tryggt,“ segir í tilkynningunni.

„Persónuvernd hefur gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á samfélagsmiðlinum Facebook og þá sérstaklega í tengslum við móttöku upplýsinga í gegnum miðilinn. Vegna þessa hefur LSS tekið þá ákvörðun að hætta að nota Facebook í samskiptum sínum við almenning og loka síðunni. Síðunni verður lokað eftir sólarhring.“

Upplýsingar og tilkynningar til almennings munu áfram verða birtar á heimasíðu lögreglunnar, logreglan.is og í fjölmiðlum eftir því sem við á og við bendum fólki jafnframt á netfang okkar [email protected] og 112.is þar sem brugðist er við erindum um leið og þau berast.

Lýkur færsluni á: „Yfir og út…“

Margir gera athugasemd við þetta, þar á meðal Dórótea nokkur sem bendir á að ekki allir geti hringt, til dæmis heyrnarlausir. Lögreglan svaraði: „Það er bara góð spurning og pæling. Sennilega best að gera það hér eftir í gegnum netfangið okkar eða í gegnum 112 appið.“