Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leyfði netverjum á Twitter að fá innsýn inn í störf sín aðfaranótt laugardags með því að tísta um öll verkefnin sem lögreglan þurfti að sinna. Um var að ræða svokallað Twitter-maraþon sem lögreglan hefur áður gert með myndarbrag.
„Við viljum bara sýna fólki innsýn í störf lögreglunnar og sýna hvað störf lögreglunnar eru fjölbreytileg og þess vegna verður mjög áhugavert að fylgjast með Twitter í kvöld,“ sagði Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni.
Leigubílstjóri var í vandræðum með viðskiptavin sem fékk sér blund í aftursætinu. Viðskiptavinurinn svaf svo fast að bílstjórinn náði ekki að vekja hann. #löggutíst
— LRH (@logreglan) December 18, 2021
Tístin voru birt undir myllumerkinu #löggutíst, þónokkrir notuðu tækifærið og skutu föstum skotum á lögregluna og hennar störf á Twitter.
Þar á meðal Tristan nokkur sem gekk svo langt að kalla sig lögreglu og nota sömu höfundamynd.
Party í kvöld
— LRH (@TRISTANFLOKI1) December 18, 2021
Dm fyrir info.#löggutíst pic.twitter.com/JsHSB0KnLe
Vorum að berja nokkra hælisleitendur.#löggutíst
— LRH (@TRISTANFLOKI1) December 18, 2021
Sumt grínið var þó góðlátlegra.
Lýsum eftir konu á óræðum aldri, meðalmanneskju á hæð en með mjög misstóra fætur. Tengist máli sem hefur verið til rannsóknar hjá embættinu síðan 1999. #löggutíst pic.twitter.com/FjJaqTv2wc
— Lögregluembættið í Viðey (@videyjarloggan) December 17, 2021