Lög­reglan birtir mynd: Hvetur fólk til að passa sig á þessu

„Nú sem áður þarf að vera á varð­bergi gagn­vart alls­kyns ó­prúttnum aðilum sem skjóta upp kollinum og því deilum við með ykkur þessum skila­boðum frá Europol,“ segir í færslu lög­reglunnar á höfuð­borgar­svæðinu á Face­book.

Lög­reglan birtir með­fylgjandi mynd en um er að ræða til­mæli sem eiga alltaf vel við, en kannski sér­stak­lega núna þegar Co­vid-19 far­aldurinn geisar. Lög­regla mælir til dæmis með því að kaupa ekki hluti á netinu sem eru upp­seldir annars staðar, ekki gefa peninga til góð­gerðar­starf­semi án þess að tryggja að um raun­veru­lega starf­semi sé að ræða eða senda peninga til ein­hvers sem þú þekkir ekki.

Við hvetjum les­endur til að kynna sér efni myndarinnar vel: