Lögreglan á Suðurnesjum á mynd dagsins í dag en á Facebook síðu sinni lætur hún fylgja marktækan lista yfir löggildar afsakanir til handa þeim sem stöðvaðir verða fyrir umferðarlagabrot um helgina.
„Meðfylgjandi er marktækur listi yfir löggildar afsakanir verði ökumenn stoppaðir vegna umferðarlagabrota um helgina,“ segir í færslunni. Þar er ekkert á myndinni eins og lesendur sjá.
„Vonandi verða sem fæstir kærðir fyrir umferðarlagabrot um helgina og hvetjum að sjálfsögðu alla til að fara varlega nú sem endranær.“